
Gæði.
Íslenskt.
Klassískt.
Það er - Íslenska pönnukökupannan
Með þessari klassísku pönnu getur þú töfrað fram hinar ómótstæðilegu íslensku pönnukökur en að mati magra eru þær stór hluti af hátíðarhöldum og íslenskri matar menningu.

Fáðu þér pönnukökur


Gæði í framleiðslu og virkar á allar tegundir helluborða
Framleidd úr gæða málmblöndu sem tryggir ótakmarkaðan lífstíma.
- Nauðsynlegt er að bræða smjörlíki á pönnunni fyrir fyrstu notkun.

Uppskrift að "Ömmu" pönnukökum
3 dl hveiti
1 msk sykur
5 dl mjólk
1/2 tsk lyftiduft
2 egg
1/2 tsk vanillu extract eða dropar
30 g smjör
Aðferð:
1. Setjið þurrefnin saman í skál og blandið vel saman, hellið 3 dl af mjólk saman við, hrærið saman í kekkjalaust deig.
2. Bætið einu og einu eggi saman við og hrærið vel.
2. Bætið einu og einu eggi saman við og hrærið vel.
3. Bætið því sem eftir er að mjólkinni saman við deigið og vanillunni, blandið vel saman.
4. Bræðið smjör á pönnukökupönnunni.
5. Hellið smjörinu saman við deigið og blandið því vel saman við.
6. Hellið þunnu lagi af deiginu á pönnuna og bakið pönnukökuna þar til hún er farin að þorna á yfirborðinu. Snúið pönnukökunni við og bakið kökuna þar til hún verður ljósbrún á hinni hliðinni.
Pantaðu þitt eintak hér
Íslenska pönnukökupannan er einnig fáanleg í öllum helstu heimilstækjaverslunum á Íslandi.